Loftslagsmál, viðræður í Istanbúl, vannýtt orka PCC, veiðigjaldslög staðfest, kallar eftir breytingum á lögum um dvalarleyfi, hnúðlax í sókn
Alþjóðadómstóll ákvað í dag að ríkjum beri lagaleg skylda til að stemma stigu við útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ríki sem verða fyrir áhrifum loftslagsbreytinga gætu krafist bóta frá ríkjum sem menga.
PCC á Bakka og Landsvirkjun eru í viðræðum vegna þeirrar miklu raforku sem kísilverið kemur ekki til með að nota næstu mánuði. Forstjóri Landsvirkjunar segir ólíklegt að hún nýtist annars staðar í kerfinu, með svo skömmum fyrirvara.
Forseti Íslands staðfesti í dag frumvarp ríkisstjórnarinnar um veiðigjald. Íslandsmet var sett í umræðu um málið á Alþingi.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að endurskoða þurfi reglur um dvalarleyfi. Hann vilji að hægt sé að vísa palestínskum manni sem réðst á ljósmyndara Morgunblaðsins í gær úr landi.
Fiskistofa hefur heimilað veiðifélögum að stemma stigu við fjölgun hnúðlaxa. Þeim hefur fjölgað hratt í íslenskum ám undanfarin ár.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir og Ævar Örn Jósepsson