Árás á stúlknaskóla, nýr borgarstjórnarflokkur, hryðjuverkamál og atvinnuleysi
Úrelt gögn leiddu til þess að Bandaríkjamenn sprengdu stúlknaskóla í Íran í lok febrúar samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu rannsóknar Bandaríkjahers. Minnst 175 voru drepin, meirihlutinn nemendur í skólanum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það ekkert áhyggjuefni þó þriðjungur borgarfulltrúa hans hafi gengið í Miðflokkinn. Níundi borgarstjórnarflokkurinn og sá fjórði í minnihluta verður formlega til á föstudaginn.
Hæstiréttur finnur að fjölmörgum þáttum í dómi Landsréttar í hryðjuverkamálinu. Rétturinn segir dómstólinn ekki hafa gert heildstætt mat á gögnum málsins og ekki metið það í samhengi við vopnalagabrot sem þeir voru sakfelldir fyrir.
Atvinnulausum hefur fjölgað á Húsavík og tugir flutt burt úr bænum, eftir að vinnsla var stöðvuð í kísilveri PCC. Formanni stéttarfélags í Þingeyjarsýslum þykir ráðamenn áhugalausir um stöðuna.
Lög sem eru sungin á ensku eru ekki lengur allsráðandi á streymisveitunni Spotify samkvæmt nýjum gögnum. Sextán tungumál heyrast í vinsælustu lögum síðasta árs.
Umsjón: Margrét Erla Markúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson