Eftirlit bætt eftir Bakkakots-mál og íþyngjandi meðferð við leyndum berklum
Bæta á eftirlit með fósturheimilum og rannsaka málefni Bakkakots, í kjölfar umfjöllunar Kveiks í vikunni, sem ráðherrar segja hafa verið sláandi.
Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað starfsmenn af öllum ásökunum um að hafa ranglega skráð sig sem meðhöfunda að fræðigreinum. Deilt er um hversu mikil sátt felst í niðurstöðunni.
Meðferð við leyndum berklum er mjög íþyngjandi, segir formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það geti ekki verið tilviljun að þeir starfsmenn Landspítalans sem greindust hafi allir unnið á bráðamóttökunni.
Norska krónprinsessan Mette-Marit ítrekaði í dag afsökunarbeiðni vegna samskipta við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Samfélagsmiðillinn TikTok hefur gefið Evrópusambandinu puttann vegna gagnrýni þess á hönnun miðilsins.