Dómur fyrir að manndráp á Menningarnótt, þáttur lögreglumanns í njósnum litinn alvarlegum augum
Sautján ára piltur, sem réðst með hnífi að þremur ungmennum á Menningarnótt í fyrra, var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Hafi verið framin brot í tengslum við leynilegar njósnaaðgerðir haustið 2012 þá eru þau líklega fyrnd að mati ríkissaksóknara.
Ísraelsher gerði árás nærri Damaskus í Sýrlandi í dag til verja minnihluta Drúsa þar í landi. Fjörutíu hafa fallið í bardögum milli trúarhópa í Sýrlandi undanfarna tvo daga.
Fangelsið á Hólmsheiði er fullt og getur ekki tekið á móti fleiri föngum. Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að snúa við með gæsluvarðhaldsfanga sem átti að koma þar inn í dag.
Malarvegurinn í Stuðlagil, einn fjölsóttasta ferðamannastað á Austurlandi, er búinn segir landeigandi og efni úr honum horfið. Mikil umferð hafi keyrt út kantana svo vegurinn hallar út, og það hefur valdið óhöppum.