Yfir 40 prósent allra fanga á Íslandi eru með erlent ríkisfang. Fangelsismálastjóri vill endurskoða reglur til að útlenskir fangar geti lokið afplánun í sínu heimalandi.
Framkvæmdastjóri leigubílastöðvar íhugar að merkja bíla kvenbílstjóra sérstaklega. Sífellt algengara er að konur biðji um kvenkyns bílstjóra vegna umræðu um öryggi í leigubílum.
Bæði Rússar og Úkraínumenn segjast reiðubúnir til beinna friðarviðræðna án skilyrða. Bandaríkjaforseti óttast að forseti Rússlands sé að draga sig á asnaeyrunum.
Mahmud Abbas, forseti heimastjórnar Palestínu og Fatah-hreyfingarinnar, skipaði í fyrsta sinn í dag í nýtt embætti varaforseta Frelsissamtaka Palestínu, PLO. Nýi varaforsetinn er talinn líklegur arftaki Abbas.
Eftir þriggja ára baráttu fóru umhverfisverndarsamtökin Just Stop Oil í sína síðustu mótmælagöngu í dag. Ellefu félagar í samtökunum sitja í fangelsi.