Frjálsar hendur

Útilegumenn, frásagnir úr Grettissögu og Biskupasögu

Í Grettissögu er skemmtilegur kafli um dvöl útlagans Grettis Ásmundarsonar í Þórisdal, dularfullum dal uppi í jökli þar sem búa útilegumenn. Um aldir virðast Íslendingar hafa trúað því slík útilegumannabyggð, bara býsna blómleg, væri í hinum leyndardómsfulla dal eða kannski í Ódáðahrauni þar sem sagt var Oddur biskup hefði leitað hælis einu sinni. Illugi Jökulsson les frásagnir úr Grettissögu og Biskupasögu Jóns Halldórssonar en síðan frásögn um ferð tveggja presta og fylgdarmanns þeirra í hinn raunverulega Þórisdal árið 1644 og hvað þeir sáu þar.

Birt

1. maí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Frjálsar hendur

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Þættir

,