Frjálsar hendur

Guðrún frá Kornsá segir frá Sigríði Oddnýju ömmu sinni

Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá segir frá ömmu sinni, einkadóttur Björns Blöndals sýslumanns og Guðrúnar konu hans. Sagt er frá uppeldi og ungum ástum í Húnavatnssýslu á 19. öld, en líka átakanlegum hlutum. Þegar amman, Sigríður Oddný, vildi læra skrifa eins og bræður hennar, voru viðbrögð móður hennar þessi: „[Guðrún] leit hvasst á [dóttur sína], og spurði svo nokkuð harkalega, hvað hún ætlaði gera með læra skrifa ... Vanþakklæti hennar í garð foreldranna [með þessu uppátæki] gæti ekki verið guði þóknanlegt.“

Einnig segir Guðrún Björnsdóttir frá Ingunni móður sinni, sem var stórmerkur rithöfundur.

Umsjón: Illugi Jökulsson.

Birt

19. sept. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Frjálsar hendur

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Þættir

,