Þú veist betur

Svarthol - 2. þáttur

Í síðasta þætti byrjuðum við tala um svarthol við hann Helga Frey Rúnarsson og fórum yfir mestmegnis af sögunni sem tengist svartholum. Þegar við ákvaðum setja punktinn vorum við nýbúin kynnast Signus, tifstjörnu sem gaf til kynna ekki væri allt með feldu. Og til sögunnar var kominn eitt stykki Stephen Hawking. Þó þátturinn snúist auðvitað ekki um hann sjálfan markar koma hans í spilið straumhvörf í rannsóknum okkar á svartholum, og bara í vísindum almennt. Til gefa örstutta sögu um manninn, bara af því mér finnst hann svo merkilegur, þá fæddist hann 8.janúar 1942 og var enskur eðlisfræðingur og heimsfræðingur, kenndi við Cambridge og var í orðsins fyllstu merkingu, snillingur. Svo mikill snillingur þegar hann dó, þann 14.mars 2018 var ösku hans dreift í Westminster Abbey, milli Sir Isaac Newton og Charles Darwin. Bara staðreynd hafa verið uppi á sama tíma og þessi merki maður er eitt og sér stórmerkilegt. Vert er benda á hans vinsælustu bók, Saga Tímans sem var samfleytt í 237 vikur á mest selda bókalistanum hjá Sunday Times. Einnig er hægt horfa á myndina The Theory of Everything sem fjallar um líf hans og leikur Eddie Redmayne Stephen sjálfan.

En máli málanna, við erum árið 1965, eða hér um bil. Við höfum fundið eitthvað þarna lengst út í geim sem við skiljum ekki hvað er. En líklegasta skýringin er hérna loksins komið, eitthvað sem við héldum væri jafnvel ekki til þó við hefðum reiknað það út löngu áður. En það eru ekki öll tilbúin samþykkja þessi rök því eins og við erum svo gjörn á segja, þá hlýtur vera til fallegri leið til útskýra hvað við séum ?horfa? á.

Svo við tökum upp þráðinn þar, spennið sætisbeltin því það er kominn tími á annan rússíbana undir stjórn Helga Freys Rúnarssonar.

Birt

25. sept. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,