Þú veist betur

Krabbamein 1.hluti

Orðið krabbamein er líklegast og því miður orð sem við öll höfum heyrt eða átt við, hvort sem það erum við sjálf eða einhver í kringum okkur. En hvað er krabbamein? Fyrir mörgum er það bara orð sem þýðir eitthvað slæmt, án þess þó við vitum endilega hvað það er nákvæmlega. Ég fékk til mín krabbameinslækninn Örvar Gunnarsson til útskýra málið betur fyrir mér og þá með það markmiði tala fræðilega um málefni sem er viðkvæmt fyrir mörgum. Það var mjög margt sem kom upp úr krafsinu og því verða þættirnir í þetta skiptið tveir, við byrjum á sögunni og almennum útskýringum um fyrirbærið og svo í næsta þætti tölum við meira um framtíðina og hvað við getum sjálf gert, sem dæmi.

Birt

30. sept. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,