Þú veist betur

Augun

Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letiauga myndast hjá börnum sem ekki er hægt laga eftir tíu ára aldur.

Einar segir sögu af því hvernig gerviaugasteinninn varð til eftir seinni heimsstyrjöldina og af sovéska augnlækninum sem skar nærsýni úr augum með hníf. Í lokin ræðum við stærstu áskoranir augnheilsu í heiminum í dag,þar á meðal sykursýki, sem er verða stærsta orsök blindu á jörðinni og hvers vegna framfarirnar í faginu síðustu áratugi hafa verið svo miklar.

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Viðmælandi: Einar Stefánsson

Birt

4. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,