Þú veist betur

Kindur

Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi?

Í þessum þætti ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsins sem íslenska féð er af og þá staðreynd við Íslendingar höfum varðveitt stærsta erfðahópinn af honum í öllum heiminum. Ólafur segir frá forystufénu, dýrum með atferli sem finnst hvergi annars staðar á jörðinni, og fer með mig í gegnum heilt æviskeið kindarinnar allt frá fengitíð til sláturtíðar. Í lokin veltum við fyrir okkur framtíð sauðfjárræktarinnar, hvort ullin gæti leyst gerviefni af hólmi, hvernig fjörubeit dregur úr metanlosun, og hvers vegna erlendir aðilar eru farnir sækjast eftir íslensku erfðaefni.

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Viðmælandi: Ólafur Dýrmundsson

Birt

4. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,