Þú veist betur

Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 1: Aðdragandi og upphaf

Við byrjum nýja seríu af Þú veist betur á umræðuefni sem er erfitt tækla í 1-2 þáttum, enda urðu þeir á endanum 5. Þetta er veisla fyrir öll okkar sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni, en líka bara þau sem vilja skilja betur heiminn sem við búum í, nútíminn er skiljanlegri ef við vitum hvaðan við komum.

Seinni heimsstyrjöldin byrjar ekki bara með innrás í Pólland. Hún á sér aðdraganda sem nær yfir efnahagskreppur, hugmyndafræði, nýlendustefnu og mannleg mistök. Við rennum yfir hvernig Hitler náði völdum í Þýskalandi, hvernig lýðræði breyttist í einræði á örfáum árum og hvernig þjóðarleiðtogar eins og Neville Chamberlain reyndu halda frið með samningum sem stóðust ekki raunveruleikann.

Við skoðum líka hvað var gerast annars staðar, sérstaklega í Asíu, þar sem Japan og Kína börðust og Chiang Kai-shek var maður ársins hjá Time áður en stríðið í Evrópu var jafnvel byrjað.

Umsjónamaður: Atli Már Steinarsson

Viðmælandi: Gísli Jökull Gíslason

Birt

15. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,