Þú veist betur

Hlaup

Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup, innan þess rúmast skokk, spretthlaup, maraþon og alls kyns mismunandi útgáfur þar á milli. Sjálfur hef ég aldrei verið mikið fyrir hlaup og kannski er það aldurinn, en eftir þennan þátt byrjaði ég prófa mig áfram og hef gaman af enn sem komið er. Markmið þáttarins er þó ekki koma ykkur út skokka, heldur pæla í þróun hlaups í gegnum árin, í hverju munurinn felst og hver framtíðin gæti verið. Það er því ekkert hlaupa prógram sem þið fáið út úr þættinum en viðmælandi okkar er samt einstaklingur sem hefur gert ófá þannig bæði fyrir sig og aðra. Arnar Pétursson, sem hefur orðið íslandsmeistari 58 sinnum hvorki meira minna.

Birt

4. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,