Þú veist betur

Súrdeig

Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf næra, klappa og fylgjast með eins og það gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir nældu bara við tilhugsunina. Í þessum þætti ætlum við skoða hvað súrdeig er eiginlega, hvaðan það kemur, hvernig það virkar og af hverju fólk er svona heltekið af því. Ég fékk Ragnheiði Maísól Sturludóttur til mín, sem hefur bæði brennt brauð og bakað fullkomin skorpubrauð, og við ræðum allt frá örverum og smjörklípu yfir í þolinmæði og nördaskap.

Ef fólk hefur áhuga á vita meira um súrdeig er hægt hlusta á þættina hennar Ragnheiðar í spilara Rúv hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/surinn/36330/aqf153

Umsjón: Atli Már Steinarsson

Birt

15. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,