Þú veist betur

Bólusetningar

Í þætti dagsins myndu sumir segja við séum tala um mál málanna. Er orðið bólusetning hugsanlega orð ársins? Hvað sem því líður þá virðast þær vera á milli tannanna á fólki, sem er kannski undarlegt þar sem það hafa farið fram alls kyns bólusetningar hér á landi í mjög langan tíma. Mislingar, hlaupabóla, lömunarveiki, allt eru þetta sjúkdómar sem voru hérna einu sinni algengir en hafa nánast þurrkast út á heimsvísu með nokkrum undantekningum. Ég hef oft haft það fyrir reglu áður en ég mynda mér skoðun á einhverju þá er líklegast best kynna sér málið, sem er auðvitað markmið þessar þáttar yfir höfuð, en á kannski betur við hér en áður. Hver er saga bólusetninga, hvernig virka þær nákvæmlega og svo auðvitað, þó við reynum halda okkur við bólusetningar almennt, hvernig er samband bólusetninga og covid. Ég fékk til mín Kristjönu hrönn Alfreðsdóttur til segja okkur meira.

Birt

3. okt. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þú veist betur

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.

Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,