Strokulaxar, geislameðferð, bensínverð, plastmengun, Storytel rannsakað og bækur í danska skóla
Um hundrað eldislaxar hafa fundist í Haukadalsá í dag. Matvælastofnun send frá sér tilkynningu síðdegis um að gat hefði fundist á sjókví á eldissvæði Arctic Sea Farm við Eyrarhlíð í Dýrafirði. Forstjóri MAST segir til rannsóknar hvort laxarnir í ánni komi úr kvínni.
Neyðarástand ríkir í krabbameinsmeðferðum, að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins. Engan hafi órað fyrir að þessi staða gæti komið upp hér á landi.
Olíuverð á Íslandi hefur ekki lækkað í takt við styrkingu krónunnar. Formaður Starfsgreinasambandsins sendi olíufélögunum erindi í dag og óskaði skýringa.
Samningamenn 185 þjóða vinna nú hörðum höndum að því að ná samkomulagi um aðgerðir gegn plastmengun. Fresturinn til þess rennur út í lok dags og horfurnar eru mjög tvísýnar.
Danir ætla að leggja sem svarar ellefu milljörðum íslenskra króna í að fjölga prentuðum bókum í hillum danskra skólabókasafna.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson