Geislameðferðir, Gaza, olíubirgðastöð, neyslurýmið Ylja eins árs, flugdólgur í innanlandsflugi, Hugleikur fær gula spjaldið
Annað tveggja tækja sem notuð eru í geislameðferð gegn krabbameini á Landspítalanum, bilaði í morgun og því er aðeins eitt slíkt í notkun. Fimm af fimmtán stöðugildum geislafræðinga eru ómönnuð og biðlistar lengjast.
Ísraelsher hefur hert árásir sínar á norðurhluta Gaza-strandarinnar. Þar hafa átta dáið úr hungri í dag.
Þrátt fyrir að starfsemi olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey sé víkjandi samkvæmt aðalskipulagi er ekki víst að henni verði gert að víkja segir deildarstjóri aðalskipulags hjá Reykjavíkurborg. Fara þurfi í umfangsmikla staðarvalsgreiningu.
Yfir 240 hafa nýtt sér þjónustu neyslurýmisins Ylju, sem nú hefur verið starfrækt í eitt ár. Teymisstjóri hjá Rauða krossinum segir aðsóknina sýna þörfina fyrir úrræðið.
Flugdólgur ýtti og sló til flugfreyja og farþega í innanlandsflugi í gær . Hann var handtekinn skömmu eftir lendingu en sleppt úr haldi í dag.
Skopmyndateiknarinn Hugleikur Dagsson segir hættu á að Facebook-aðgangi hans verði lokað vegna dónaskapar. Hann er þó ekki hættur að birta myndir á samfélagsmiðlinum.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson