Hraun flæðir úr tíu gígum á Sundhnúksgígaröðinni; skjálftavirkni er lítil. Brennisteintvíildismengun hefur náð hættumörkum á afmörkuðum svæðum.
Sérfræðingur í loftgæðum segir að fólk verði að treysta á sjálft sig þegar mæla vantar. Íbúafjöldi og þéttbýli ráði staðsetningu mælanna.
Viðræður um um tvíhliða varnar- og öryggisamvinnu milli Íslands og ESB hefjast senn. Hún yrði óháð NATO-aðild og varnarsamningum við Bandaríkin. Við þetta verður til þriðja stoðin undir öryggis- og varnarhagsmuni Íslands
Innan við helmingur af lagafrumvörpum sem ríkisstjórnin lagði fram á nýafstöðnu þingi varð að lögum. Skilvirkni þingsins myndi aukast til muna ef þingmál lifðu milli þinga segir lagaprófessor.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill að allir sem staðnir eru að vændiskaupum séu ákærðir í stað þess að refsing fyrir fyrstu vændiskaup sé að öllu jöfnu fjársekt.