Þú veist betur

Fæðingar

Öll höfum við fæðst, eða er það annars ekki? Mögulega eru til einhver tilfelli eins og klónun eða annað sem ég get ekki ímyndað mér en ég held þessi staðhæfing haldi vatni. Hvort við höfum gengið í gegnum það fæða sjálf eða vera viðstödd fæðingu er hinsvegar annað mál. Ég viðurkenni sjálfur er ég fara ganga í gegnum það ferli ef allt gengur upp bráðlega, svo efni þáttarins er hugsanlega valið út frá persónulegri sjónarmiði en oft áður. En hinsvegar held ég við höfum öll gott af því vita meira um fæðingar, um hvað þær snúast og við hverju búast. Til okkar er komin Birna Gerður Jónsdóttir og saman ætlum við fara yfir málin, ég spyrja eins og sem ekkert veit og vonandi lærum við eitthvað saman. Við ætlum byrja á því horfa aðeins aftur í tímann.

Ég minni á póstinn minn [email protected] ef það eru einhverjar spurningar eða ábendingar um efni sem þið viljið koma að. Einnig á hlaðvarpið Legvarpið ef fólk vill heyra fleira og meira um allt sem tengist fæðingu, en svo ég vitni í texta hlaðvarpsins: "Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu", endilega leggið við hlustið ef þið hafið áhuga!

Frumflutt

14. apríl 2024

Aðgengilegt til

14. apríl 2025
Þú veist betur

Þú veist betur

Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Þættir

,