Hríðarveður gengur yfir landið á morgun og aðra nótt, og í sumum landshlutum er útlit fyrir ofsaveður. Útlit er fyrir enn verra veður seinna í vikunni. Þá getur orðið ofsaveður um land allt.
Evrópusambandið segir að svarað verði í sömu mynt ef Bandaríkjaforseti lætur verða af hótun sinni um að hækka tolla á innflutning frá aðildarríkjum ESB.
Til stendur að hækka gatnagerðargjöld í Reykjavík. Þau hafa ekki staðið undir kostnaði. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir gjöldin allt að tvöfaldast og leggjast þungt á húsbyggjendur.
Nýleg rannsókn sýnir að kolefnisbinding sem hlýst af skógrækt er ekki eins mikil og af beitingu á landi.
Ekki er hægt að tryggja öryggi listaverka í núverandi húsnæði Listasafns Íslands, samkvæmt nýrri skýrslu. Safnstjóri segir til skoðunar að flytja safnið.