Morgunútvarpið

29. júní - Efnahagsmál, Íslandsbanki, Vestmanneyjar og RVK Fringe

Við skoðuðum sjálfbærni í íslenskri matvælaframleiðslu og hvort hún geti betur fallið loftslagsmarkmiðum Íslands. Jónas Viðarsson sviðsstjóri Matís kom til okkar.

Blessuð verðbólgan er loksins komin niður fyrir 9 prósentin og stendur í 8,9%. Við í Morgunútvarpinu trúum á það fagna litlu sigrunum og buðum því Hjalta Óskarssyni hagfræðingi í Landsbankanum til okkar ræða efnahagsmálin.

Páll Magnússon fyrrverandi þingmaður og forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, kíkti í morgunkaffi til okkar. Við ræddum söluna á Íslandsbanka, forystu Sjálfstæðisflokksins og málefni Vestmannaeyja þegar 50 ár eru liðin frá goslokum í eyjunni fögru.

Hin árlega RVK Fringe hátíð er haldin í sjötta sinn. Hátíðin býður upp á fjölbreytt úrval viðburða en yfir 100 viðburðir verða haldnir á ýmsum stöðum á víð og dreif um miðborgina. Skipuleggjendur segja miðborgin umbreytist í miðstöð listrænnar tjáningar. Til segja okkur nánar frá því sem fram kom til okkar Ingunn James annar tveggja hátíðarstjóra.

Það breyttist ekkert eftir hrun og það mun ekkert breytast eftir Íslandsbankamálið og staðreyndin er brot Íslandsbanka er bara toppurinn á ísjakanum. Þetta segja þau Ásthildur Lóa Þórisdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og þingmaður Flokks fólksins, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í skoðunargrein sem birtist á Vísir.is í gær sem ber yfirskriftina ?Sami skíturinn í aðeins fínni skál?. Ásthildur Lóa var gestur okkar í lok þáttar.

Tónlist

KK - Þjóðvegur 66.

KLARA ELIAS - Nýjan stað.

REX ORANGE COUNTY - Keep It Up.

Pláhnetan - Spútnik.

NÝDÖNSK - Lærðu Ljúga.

Snorri Helgason - Ingileif.

BRUCE SPRINGSTEEN - Girls In Their Summer Clothes.

Frumflutt

29. júní 2023

Aðgengilegt til

28. júní 2024
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,