Morgunútvarpið

Eldgos, Landsbankinn, auglýsingaskilti, stúdentar og landsleikur

Enn gýs á milli Hagafells og Stóra Skógfells og ekki virðist hafa dregið úr gosinu samkvæmt náttúruvársérfræðingi Veðurstofunnar. Þetta er lengasta gosið á þessu svæði hingað til. Við fórum yfir stöðuna með Freysteini Sigmundssyni jarðeðlisfræðingi.

Ásgeir BrynjarTorfason hagfræðingur og ritstjóri Vísbendingar mætti í spjall um Landsbanka, TM og stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans.

Kári Sævarsson, auglýsingamaður, var gestur okkar fyrir átta fréttir þegar við ætlum ræða áfram deilur Reykjavíkurborgar og Ormsson um stórt auglysingaskilti á húsi fyr­ir­tæk­is­ins við Lág­múla. Margar spurningar vakna vegna málsins, þarf borgin oft skipta sér af björtum auglýsingum við umferðaþungar götur og er enn æskilegt - á tímum samfélagsmiðla - auglýsa á flettiskiltum og annars staðar í umferðinni.

Kosningar til stúdentaráðs Háskóla Íslands og háskólaráðs skólans hefjast í dag og þar er deilt um matarverð, bílastæðagjöld, námslánin og fleira. Við ræddum við fulltrúa frá fylkingunum, Júlíus Viggó Ólafsson frá Vöku og Andra Tómasson frá Röskvu.

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta leikur mikilvægan umspilsleik við Ísrael á morgun um laust sæti á EM í Þýskalandi í sumar. Nokkuð hefur verið deilt um leikinn og einhver hafa kallað eftir því Ísland eigi sniðganga leikinn. Við ræddum þau mál, og það keppa við þjóð sem er í stríði, við Hrönn G. Guðmundsdóttur, umhverfisfræðing og meðlim í BDS sniðgönguhreyfingunni, sem skrifaði grein á Vísi í gær um hvítþvott á fótboltavellinum, og Stefán Pálsson, sagnfræðing og knattspyrnusérfræðing, sem hefur talað fyrir því fara varlega í það sniðganga leiki sem þennan.

Atli Fannar Bjarkason sagði okkur frá nýjum hlaðvarpsþáttum, sorrí!.

Lagalisti:

LAUFEY - Everything I know about love.

GDRN - Ævilangt.

Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.

MADNESS - It Must Be Love.

UNNSTEINN - Andandi.

Friðrik Dór Jónsson, Kvikindi - Úthverfi.

Jónfrí - Draumur um Bronco.

STROMAE - Papaoutai.

Frumflutt

20. mars 2024

Aðgengilegt til

20. mars 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,