Morgunútvarpið

Fleiri konur beita heimilisofbeldi, færri útskrifast af náttúrufræðibraut, Obama í Kalda og HM í fótbolta

gögn ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung 2026 sýna konur voru grunaðar um vera árásaraðili í rúmlega fjórðungi heimilisofbeldismála, eða 27%. Hlutfallið hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár, úr 17% árið 2021 og í 24% árið 2025, og hefur ekki mælst hærra á tímabilinu. Þóra Jónasdóttir yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kom til okkar og fór yfir þessa þróun.

Í fyrsta sinn frá 2016 var náttúrufræðibraut ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í fyrra. Sífellt fleiri útskrifast af öðrum eða opnum brautum í dag. En hvaða útskýrir þessar breytingar og hvaða þýðingu getur þetta haft fyrir nemendur? Guðjón Hreinn Hauksson formaður félags framhaldsskólakennara og Elsa Eiríksdóttir prófessor á menntavísindasviði Háskóla Íslands kíktu til okkar í Morgunútvarpið.

Það vakti athygli á dögunum þegar Malia Obama dóttir Baracks Obama fyrrverandi forseta Bandaríkjanna skartaði hælaskóm frá íslenska skómerkinu Kalda. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem frægir klæðast merkinu en þar nefna söng- og leikkonuna Lady Gaga, fyrirsæturnar Hailey Bieber og Bellu og Gigi Hadid. Katrín Alda Rafnsdóttir er stofnandi Kalda, hún sagði okkur frá hönnuninni, vinsældum merkisins bæði hér heima og vestanhafs og nýju sumarlínunni.

Anna Sigrún Davíðsdóttir mætti til okkar með ólgandi heitan mola úr heimi íþróttanna .ar sem HM karla í fótbolta var áberandi.

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,