Morgunútvarpið

Flekaskil, tuttugu og eitthvað, hagvaxtaspá og stelpurnar okkar

Tuttugu og eitthvað er íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Í þáttunum fylgjumst við með þremur ungmennum takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Óli Gunnar mætti til okkar ásamt leikstjóranum Kristófer Dignus.

Horfur eru á kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið vari lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Horfur eru á verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans til ársins 2028, sem var birt í dag. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, kom í Morgunútvarpið og útskýrði þessar tölur fyrir okkur.

Talsmönnum skautunar í umræðu svelgdist á kaffinu sínu í vikunni þegar það kom í ljós Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð og Dagur B. Eggertsson eru byrjuð með hlaðvarp saman. Hlaðvarpið heitir Flekaskið og þar ræða þau breytta stöðu í alþjóðamálum og áhrifin á Ísland. Við fengum þau til okkar ræða fréttir vikunnar og kannski örlítið um þetta nýja hlaðvarp.

Ísland mætir Englandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta 2027 á Laugardalsvelli á laugardag. Stelpurnar okkar unnu Úkraínu 1-0 á Laugardalsvelli í vikunni en sigurinn var afar mikilvægur í baráttunni um þriðja sæti riðilsins sem er umspilssæti fyrir HM í Brasilíu á næsta ári. Athygli vakti aðeins 1.500 manns mættu á leikinn gegn Úkraínu og stelpurnar vilja sjálfsögðu sjá fleira fólk á Laugardalsvelli á laugardaginn. Landsliðskonurnar Guðrún Arnardóttir, sem leikur með Hammarby og Hlín Eiríksdóttir leikmaður Fiorentina komu til okkar í spjall.

Birt

17. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,