Morgunútvarpið

Patrik Atla,Ólínuskjölin,núvitund,Miðstöðin og allt það helsta úr heimi íþróttanna

Hvernig getur iðkun núvitundaræfinga hjálpað við skapa jákvæðar breytingar í heiminum? Þessari spurningu verður svarað á námskeiðinu Náttúra og núvitund, samkennd í verki á föstudag og laugardag og ekki vanþörf á! Á námskeiðinu eru notaðar núvitundar- og samkenndaræfingar með aðferðafræði Joanna Macy. Þetta ku vera árangursrík aðferð sem spratt upp úr áratugalöngum umhverfisaðgerðum hennar og djúpum skilningi á búddisma. Guðný Káradóttir og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir komu og sögðu okkur betur frá þessu.

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, stundum kallaður Prettyboitjokkó, sendi nýlega frá sér plötuna Orsök / Afleiðing. Á plötunni slær Patrik nýjan og persónulegri tón eftir verið meira í léttleika og klúbbastemningu í lögum á borð við Skína, sem við þekkjum öll. Á plötunni meðal annars finna lagið Þú ert ekki hér, þar sem hann minnist frænda síns, Hannesar Helgasonar. Patrik kom til okkar.

Hlaðvarpsþættirnir Mín saga: Ólínuskjölin hafa vakið mikla athygli en í þeim segir leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hluta sögu sinnar í eigin orðum sögu sem spannar áratugi og fjallar um ofbeldi, þöggun, réttlæti, samfélag og stöðu barna og kvenna á Íslandi. Þættirnir eru átta talsins og koma allir út í apríl. Steinunn Ólína mætti í Morgunútvarpið.

Anna Sigríður Davíðsdóttir frá íþróttadeild RÚV mætti með það helsta úr heimi íþróttanna.

Miðstöðin er nýr vikulegur þáttur um dægurmenningu þar sem tónlist, sjónvarp og kvikmyndir verða í forgrunni. Siggi Gunnars stýrir þættinum og hann leit við í Morgunútvarpinu og sagði okkur frá þeim.

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,