
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hópur netöryggissérfræðinga frá Íslandi tók nýverið þátt í stærstu netöryggisæfingu heims. Rúmlega 4.000 þátttakendur frá 41 landi tóku þátt í æfingunni og skipuðu 16 fjölþjóðleg lið sem kepptu sín á milli. Ísland myndaði sameiginlegt lið með Noregi og Atlantshafsbandalaginu. Netsvikamálum fjölgar ört um þessar mundir og Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERTIS, kom í Morgunútvarpið og leggði okkur línurnar.
Okkar maður Guðmundur Jóhannsson var á sínum stað með tæknihornið og ræddi gervigreindina.
Umræðan um peptíð hefur ekki minnkað eftir að við töluðum um þau síðast í Morgunútvarpinu en fólk kaupir slíkt á svörtum markaði í von um betri húð, svefn og endurheimt eftir æfingar svo eitthvað sem nefnt. Ragga Nagli hefur kynnt sér þessi mál og var á línunni frá Köben og fræddi okkur.
Þúsundþjalasmiðurinn Rúnar Hroði æfir nú fyrir sinn fyrsta járnkarl og gerir það meðfram vinnu, barnauppeldi og almennum dugnaði á heimilinu. Þetta gerir Rúnar til að styrkja Barnaspítala Hringsins en eftir erfitt æfingartímabil styttist í að hann fari út og að leikar hefjist. Rúnar kom til ykkar í spjall.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.