Morgunútvarpið

Matvöruverð, tæknihornið, brotthvarf Baldurs og 100 ára kirkja í Flatey

Fjölmiðillinn Gímaldið birti á dögunum ítarlega úttekt á matvöruverði og hækkunum undanfarinna ára. Þar kemur meðal annars fram hvergi í Evrópu dýrara kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana haldi áfram vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur samfélagið allt hafi hreinlega brugðist. Helga Arnardóttir, nýr liðsmaður Gímaldsins, ræddi við okkur um úttektina.

Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar með ólgandi heitan mola úr heimi tækninnar.

Breiðafjarðarferjan Baldur var tekin úr siglingu milli Stykkishólms og Brjánslækjar í byrjun mánaðarins til sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja ásamt Herjólfi. Þessi ákvörðun stjórnvalda hefur verið harðlega gagnrýnd af sveitarfélögum við Breiðafjörð. Við vorum í beinni frá Stykkishólmi og ræddum við Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóra og Ingveldi Eyþórsdóttur íbúa og Stykkishólmi og húseiganda í Flatey.

Við höldum okkur í Breiðafirðinum því kirkjan á Flatey var vígð árið 1926 og fagnar því 100 ára afmæli í ár. Þrátt fyrir ferjuleysi hafa Flateyingar skipulagt afmælisdagskrá í sumar til fagna kirkjunni sinni. Við tókum hús á Gyðu Steinsdóttur sem hefur ásamt fleirum skipulagt aldarafmælið.

Birt

29. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,