Morgunútvarpið

Örgrunnskóli á Raufarhöfn, gos nálgast, Svarti dauði, úrelt lög, íþróttir og hafragrautur.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi, var á línunni hjá okkur í upphafi þáttar um skólamál á Raufarhöfn.

Veðurstofan hefur gefið út öllum líkindum nái kvikumagn undir Svartsengi þolmörkum í vikunni. Þorvaldur Þórðarson ræddi málið við okkur.

Erfðafræðingurinn Arnar Pálsson kíkti til okkar og ræddi áhrif plágunnar miklu á erfðamengi okkar mannfólksins.

Við spjölluðum um helgidagafrið og önnur hugsanlega úrelt lög við Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands.

Eva Björk Benediktsdóttir íþróttafréttamaður fór yfir íþróttirnar með okkur.

Loks ræddum við hafragrautinn góða við Önnu Sigríði Ólafsdóttur, prófessor í næringarfræði, í lok þáttar.

Lagalistinn:

Greiningardeildin, Bogomil Font - Sjóddu frekar egg.

CHRISTINE AND THE QUEENS - Je te vois enfin.

Flott - Við sögðum aldrei neitt.

MUGISON - É Dúdda Mía.

TOPLOADER - Dancing In The Moonlight.

Bubbi Morthens - Lög og regla.

Inspector Spacetime - Smástund.

SINEAD O CONNOR - Mandinka.

Frumflutt

26. feb. 2024

Aðgengilegt til

25. feb. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.

Þættir

,