Kiljan

Þáttur 3 af 24

Í Kilju vikunnar fjöllum við um hljóðbækur. Notkun þeirra hefur aukist ótrúlega hratt og er svo komið þær eru stór hluti bókamarkaðarins. Halldór Guðmundsson, rithöfundur og fyrrverandi útgefandi, ræðir við okkur um þessa þróun. Við fjöllum um ljóðasafn sem nefnist Pólífónía af erlendum uppruna, en bók hefur geyma kvæði á íslensku eftir fimmtán skáld sem eru öll af erlendu bergi brotin. Það er ritstjóri safnsins, Natasha Stolyarova, sem ræðir við okkur. Við spjöllum við Christopher Maclehose, en hann er breskur bókaútgefandi sem hefur sérhæft sig í gefa út góðar bókmenntir í vönduðum þýðingum. Maclehose hlaut nýlega íslensku Fálkaorðuna. Hann hefur meðal annars gefið út bækur eftir Arnald Indriðason, Jón Kalman Stefánsson og Einar Kárason ? auk fjölda höfunda úr víðri veröld. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um verðlaunabókina Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur og nýútkomna bók sem nefnist Stuldur og er eftir Ann-Helén Laestadius og gerist á slóðum Sama í Svíþjóð. Þátturinn er á miðvikudagskvöld klukkan 20.35.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

16. feb. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,