Kiljan

Þáttur 8 af 24

Í Kilju vikunnar fjöllum við um ljóðabókina Sjófuglinn eftir Egil Ólafsson. Bókin er ort við dánarbeð föður hans Ólafs Á. Egilssonar og segir frá heldur brokkengri ævi hans. Við leitum uppi æskuheimili Ólafs sem var við Lindargötu en er á Árbæjarsafni. Halldór H. Jónsson var mikilvirkur arkitekt og kaupsýslumaður, stundum kallaður "stjórnarformaður Íslands." Frægasta verk hans er glæsibyggingin Hótel Saga. Björn Jón Bragason og Pétur H. Ármannsson segja frá bók þar sem er rakin ævi og ferill Halldórs. Fálkar er glæsileg bók eftir Daníel Bergmann, hann hefur myndað fálka í tvo áratugi og afraksturinn sjá í bókinni. Gagnrýnendur þáttarins ræða um þrjár bækur sem eru: Húslestur eftir Magnús Sigurðsson, Smámunir eins og þessir eftir Claire Keegan og Lítil bók um stóra hluti eftir Þórunni Valdimarsdóttur.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

29. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,