Kiljan

Þáttur 8 af 24

Eliza Reid forsetafrú er gestur í Kilju vikunnar. Hún spjallar við okkur um bók sína Sprakkar sem á næstunni kemur út á ýmsum tungumálum. Við fjöllum um bók sem er helguð verkum hins gagnmerka arkitekts Þóris Baldvinssonar, ritstjóri hennar er Ólafur J. Engilbertsson en af höfundum nefna Pétur H. Ármannsson. Við förum í nýtt Bókasamlag í Skipholti en þar ráða ríkjum Kikka Sigurðardóttir og Dagný Maggýjar. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Ísland pólerað eftir Ewu Marcinek, Kalmann eftir Joachim B. Schmidt og Meðal hvítra skýja, en það eru þýðingar á fornum kínverskum ljóðum eftir Hjörleif Sveinbjörnsson.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

23. mars 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,