Kiljan

Þáttur 23 af 24

Rithöfundurinn Steinar Bragi er gestur í Kilju vikunnar. Hann rabbar við okkur um skáldsöguna Dáin heimsveldi - hún flokkast líklega sem vísindaskáldskapur en þó býsna Steinars Braga-leg. Bergsveinn Birgisson fræðir okkur um handritasafnarann Þormóð Torfason, en bók Bergsveins um hann kom á norsku fyrir fáum árum en birtist á íslensku þýdd og staðfærð. Lóa Hjálmtýsdóttir segir okkur frá sprellfjörugri barnasögu sinni sem nefnist Héragerði. Í þættinum greinum við svo frá vali bóksala á bestu bókum ársins líkt og við höfum gert í Kiljunnni í mörg ár. Við skýrum líka frá því hvaða bækur tilnefningar til íslensku þýðingarverðlaunanna. Rýnendur þáttarins fjalla um Hamingju þessa heims eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur, Játningu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, Usla eftir Úlfar Þormóðsson og Ófreskjuna í mýrinni eftir Sigrúnu Eldjárn. Þátturinn hefst þessu sinni klukkan 22.05 á miðvikudagskvöld.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

14. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,