Kiljan

Þáttur 15 af 24

Gerður Kristný er gestur í Kilju vikunnar. Hún er nýbúin senda frá sér nýja ljóðabók sem nefnist Urta, fjallar um fólk og seli. Haukur Már Helgason ræðir við okkur um bók sína Tugthúsið, það er heimildaskáldsaga sem segir frá fangelsinu sem var í húsinu þar sem er Stjórnarráðið. saga er blóðug, grimm og sorgleg - en persónugalleríið er afar litríkt. Natasha S. kemur í þáttinn, hún er upprunnin í Moskvu, búsett á Íslandi og yrkir ljóð á íslensku. Hún fékk í vikunni bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmudssonar fyrir bókina Máltaka á stríðstímum. Við hittum Jónínu Leósdóttur sem segir okkur frá nýjustu spennusögu sinni sem ber heitið Varnarlaus. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Kákasusgerilinn eftir Jónas Reyni Gunnarsson, Þetta rauða, það er ástin eftir Rögnu Sigurðardóttur og Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

19. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,