Kiljan

Þáttur 12 af 24

Í kvöld verður síðasta Kiljan á vorvertíðinni. Þátturinn er afar efnismikill. Eiríkur Rögnvaldsson málfræðingur kemur í þáttinn til ræða bók sína Alls konar íslenska. Í Hafnarfirði hittum við Ragnheiði Gestsdóttur sem nýskeð fékk glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir sögu sína Farangur. Önnur íslensk skáldsaga er 10 dagar í helvíti eftir Magnús Lyngdal Magnússon. Við hittum hann í Norðurmýrinni. Haukur Ingvarsson rekur fyrir okkur söguna af því þegar Nóbelsverðlaunahafinn William Faulkner kom til Íslands í miðri menningarbaráttu kalda stríðsins ? Haukur er höfundur bókarinnar Fulltrúi þess besta í bandarískri menningu. Í Bókum og stöðum förum við norður í Skagafjörð og fjöllum um feðgana Indriða G. Þorsteinsson og Arnald Indriðason. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Þykjustuleikana eftir Anton Helga Jónsson, Farþegann eftir Ulrich Alexander Boschwitz og Þernuna eftir Nita Prose.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

4. maí 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,