Kiljan

Þáttur 11 af 24

Við fjöllum um stórmerkilega sjálfsævisögu í Kilju vikunnar. Bókin var rituð af Bjargeyju Kristjánsdóttur, sem köllluð var Bíbí. Hún var alin upp í fátækt á Hofsósi, var flokkuð með fávitum eins og það var kalllað, og ung var hún sett í langtímavistun með öldruðu fólki á Blönduósi. En Bíbí hafði sterkan vilja, lærði lesa og skrifa, og ritaði ævisögu sína sem kemur út þrjátíu árum eftir andlát hennar. Við segjum frá bókaútgáfu sem nefnist Hringaná og nýrri útgáfubók frá henni ? Óskalög hommanna nefnist hún og er eftir Ragnar H. Blöndal. Við förum á bókmenntaslóðir á Sauðárkróki þar sem verða á vegi okkar Hannes Pétursson, Guðrún frá Lundi, Gyrðir Elíasson og fleiri höfundar. Gagnrýnendur þáttarins ræða um þrjár bækur: Ef þetta er maður eftir Primo Levi, Jagúar skáldsins eftir Óskar Magnússon og Allt og sumt eftir Þórarin Eldjárn.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

27. apríl 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,