Kiljan

Þáttur 3 af 24

Hinn ástsæli skopmyndateiknari Halldór Baldursson er gestur í Kilju vikunnar. Halldór hefur sent frá sér bók sem nefnist Hvað nú? Í henni fjallar hann um menntun, sína eigin og annarra, með aðferð teiknimyndasögunnar. Útkoman er í senn hugvekjandi og bráðskemmtileg. Hildur Knútsdóttir ræðir við okkur um nýja nóvellu eftir sig sem kallast Urðarhvarf. Í Hafnarfirði hittum við skáldið Draumeyju Aradóttur sem þar er búsett. ljóðabók hennar heitir Varurð. Við minnumst rithöfundarins Jóns Trausta en um þessar mundir eru liðin 150 ár frá fæðingu hans - hann sleit barnsskónum í fátækt á Melrakkasléttu og Öxarfjarðaheiði. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Skuggabrúna eftir Inga Markússon og Violetu eftir Isabel Alliende.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

15. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,