Kiljan

Þáttur 16 af 24

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og spennusagnahöfundurinnn Ragnar Jónasson koma í Kilju vikunnar og spjalla um Reykjavík, en það er heitið á bókinni sem þau hafa skrifað saman. Einar Kárason segir frá bók sinni Opið haf, það er mannraunasaga sem byggir á hinu fræga sundafreki Guðlaugs Friðþórssonar. Rúnar Gunnarsson sýnir okkur merkar ljósmyndir úr nýútkominni bók sem nefnist Gullöldin ? það eru myndir sem eru teknar allt frá upphafi sjöunda áratugsins. Sigríður Víðis Jónsdóttir segir frá Vegabréf - íslenskt, en þar segir hún frá átaka- og hörmungasvæðum sem hún hefur heimsótt víða um veröld. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Saknaðarilm eftir Elísabetu Jökulsdóttur, Eitt satt orð eftir Snæbjörn Arngrímsson og Gift eftir Tove Ditlevsen.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

26. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,