Kiljan

Þáttur 10 af 24

Í Kilju vikunnar, sem er í styttra lagi vegna landsleiks kvenna í handbolta, verður rætt við Halldór Svavarsson sem hefur skrifað stórmerkilega bók um strand seglskipsins Jamestowns, sem fulllestað var af unnum eðalvið, við Hafnir á Reykjanesi árið 1881. Einnig er rætt við ljóðskáldið Jakub Stachowia. Hann er pólskur en yrkir á íslensku og hefur gefið út ljóðabókina Næturborgir. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Elsku sólir eftir Ásu Marín, Kjörbúðarkonuna eftir Sayaka Murata og Miðnæturbókasafnið eftir Maitt Haig.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

20. apríl 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,