Kiljan

Þáttur 18 af 24

Við bjóðum upp á stóra og spennandi Kilju þessa vikuna með fjölda nýútkominna bóka. Auður Ava Ólafsdóttir segir okkur frá nýju skáldsögunni sinni sem nefnist Eden. Guðrún Eva Mínervudóttir ræðir bókina sína Útsýni - hún gerist miklu leyti á Bakkafirði. Linda Vilhjálmsdóttir fer með okkur á slóðir sínar á Seltjarnarnesi og talar um ljóðabókina humm. Úlfar Þormóðsson segir frá Usla, það er skáldsaga eftir hann sem gerist á 19. öld, á Siglufirði og í Skagafirði. Svo hittum við franska rithöfundinn Pierre Lemaitre en eftir hann hafa verið þýddar fimm bækur á íslensku. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Gættu þinna handa eftir Yrsu Sigurðardóttur og Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

9. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,