Kiljan

Þáttur 13 af 24

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er meðal gesta í fyrstu Kilju haustvertíðarinnar sem er á dagskrá RÚV klukkan 20.05 á miðvikudagskvöld. Guðni spjallar um nýja bók sína sem nefnist Stund milli stríða - saga landhelgismálsins 1961-1971. Berglind Ósk er nýr höfundur sem sendir frá sér smásagnsafnið Breytt ástand. Hún segir okkur frá bókinni sem fjallar á óvæginn hátt um fíkniefnaneyslu og ungt fólk sem er á reiki í lífinu. Björn G. Björnsson ræðir um bók sem hann hefur tekið saman um húsameistarann Einar Erlendsson ? það á eftir koma mörgum á óvart hvílík áhrif þessi lítt þekkti maður hafði á Reykjavík. Soffía Auður Birgisdóttir og Steinunn Inga Óttarsdóttir segja frá skald.is sem líklega er öflugasti bókmenntavefur á Íslandi um þessar mundir. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Neðanjarðarjárnbrautina eftir Colson Whitehead og Með flugur í höfðinu: Sýnisbók prósaljóða og örsagna 1922-2012.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

5. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,