Kiljan

Þáttur 24 af 24

Síðasta Kilja ársins er á dagskrá RÚV á miðvikudagskvöldið 21. desember. Guðrún Jónína Magnúsdóttir segir frá bók sinni sem nefnist Álfadalur en þar greinir frá skelfilegum voðaverkum sem settu mark sitt á líf fjölskyldu hennar. Spennusagnahöfundurinn Stefán Máni talar við okkur um Hungur en þó aðllega um Hörð Grímson, lögreglumanninn sem er aðalpersóna í bókum Stefáns. Stefán telur það hann sem geri bækurnar svo vinsælar. Tveir nýir höfundar koma fram í þættinum og eru reyndar báðir þekktir tónlistarmenn. Örvar Smárason er í Múm en sendir frá sér smásagnasafnið Svefngrímuma, en Skuggabrúin er furðusaga eftir Inga Markússon sem var í rafdúettnum Reptilicusi. Sigmundur Ernir Rúnarsson ræðir við okkur um Spítalastelpuna sem er mikil örlagasaga frá tímanum þegar berklar voru hér landlægir. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Lungu eftir Pedro Gunnlaug Garcia, Brimhóla eftir Guðna Elísson, Urtu eftir Gerði Kristnýju og Allt er svart í myrkrinu eftir Elísabetu Thoroddsen.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

21. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,