Kiljan

Þáttur 9 af 24

Í Kilju vikunnar birtum við viðtal við Andrej Kurkov, einn frægasta rithöfund Úkraínu. Kurkov hefur skrifað fjölda bóka, meðal annars hina bráðfyndnu skáldsögu Dauðann og mörgæsina. Hún hefur verið endurútgefin hjá Bjarti. Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir flytur okkur magnað kvæði eftir eistnesku skáldkonuna Kristiina Ehin - ljóðið fjallar um innrás Rússa í Úkraínu og var frumflutt í eistnesku sjónvarpi fyrir skemmstu. Hjá okkur hljómar það í þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur og Lemme Lindu S. Ólafsdóttur. Við rifjum upp minningar um Guðrúnu Helgadóttur, skoðum myndbrot sem tengjast henni úr safni Sjónvarpsins, og ræðum verk hennar við rithöfundana Gunnar Helgason og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Næturverk eftir Sjón, Gilgameskviðu í þýðingu Stefáns Steinssonar og Rauða rúllettu eftir Desmond Shum.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

6. apríl 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,