Kiljan

Þáttur 2 af 24

Magnea J. Matthíasdóttir er gestur í Kilju vikunnar. Hún var vinsæll og umdeildur höfundur á áttunda áratugnum en hætti svo gefa út skáldskap fyrr en hún sendir frá sér ljóðabókina Þar sem malbikið endar. Skúli Sigurðsson kemur í sjónvarpssal og segir dálítið frá sjálfum sér en hann fékk nýskeð glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir spennusöguna Stóri bróðir. Valur Gunnarsson spáir í því sem hefði getað orðið i bókinni Hvað ef - hvað ef til dæmis menn hefðu notað vopnin sem þeir höfðu birgt sig upp af í Hvíta stríðinu í Reykjavík 1921? Loks hittum við breska fjölmiðlamanninn Richard Osman. Hann er frægur í heimalandinu fyrir störf í sjónvarpi en tók upp á því skrifa léttar glæpasögur sem hafa orðið feikivinsælar ? tvær þeirra hafa komið út á íslensku. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Farsótt eftir Kristínu Svövu, hmmm eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og Vanþakkláta flóttamanninn eftir Dina Nayeri.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

8. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,