Kiljan

Þáttur 17 af 24

Tveir af helstu rithöfundum þjóðarinnar verða gestir í Kilju vikunnar. Jón Kalman Stefánsson kemur í þáttinn með nýja skáldsögu sína sem nefnist Guli kafbáturinn og Ólafur Jóhann Ólafsson segir okkur frá Játningu, nýrri bók sinni. Dagur Hjartarsson gengur með okkur yfir Hringbrautina og segir frá mjög svo ljóðrænni skáldsögu sem heitir Ljósagangur. Við hittum svo bráðskemmtilegan og sjarmerandi rithöfund frá Kanada, Kim Thuy heitir hún, er af víetnömskum ættum og var í æsku ein af bátafólkinu sem flýði Vietnam. Ru nefnist bók hennar sem er nýkomin út á íslensku í þýðingu Arndísar Lóu Magnúsdóttur. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Gratiönu eftir Benný Sif Ísleifsdóttur, Hungur eftir Stefán Mána og Frankensleiki eftir Eirík Örn Norðdahl.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

2. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,