Kiljan

Þáttur 19 af 24

Í Kiljunni á miðvikudag, á degi íslenskrar tungu og afmæli Jónasar, fjöllum við um bókina Á sporbaug en þar eru rakin hin fjölmörgu og snjöllu nýyrði þjóðskáldsins. Höfundar bókarinnar eru þær Anna Sigríður Þráinsdóttir og Elín Elísabet Einarsdóttir, en Helga Gerður Magnúsdóttir hannar hana. Við spjöllum við Hermann Stefánsson um nýja bók hans Milllibilsmann, en hún gerist í Reykjavík á tíma þegar gekk yfir bylgja spírítísma eða andatrúar. Sigríður Hagalín Björnsdóttir segir okkur frá nýrri skáldsögu sinni sem nefnist Hamingja þessa heims; þetta er skáldsaga sem gerist á svonefndri enskri öld, eftir svarti dauði hafði drepið stóran hluta landsmanna. Páll Stefánsson og Gunnsteinn Ólafsson ræða um þriggja binda bókaflokk sinn um íslenska náttúru. Hjarta Íslands heitir verkið í heild sinni en þriðja og síðasta bókin nefnist Frá Hrísey til Fagradalsfjalls. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Dáin heimsveldi eftir Steinar Braga, Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Bannað ljúga eftir Gunnar Helgason.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

16. nóv. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,