Kiljan

Þáttur 6 af 24

Sjón er gestur í Kilju vikunnar. Nýlega var tilkynnt hann fengi norræn verðlaun Sænsku akademíunnar. Fyrir stuttu, á sextugsafmæli hans, kom einnig út heildarsafn ritverka hans. Við kynnum okkur verðlaun Hagþenkis og tilnefningar til þeirra, en þessi verðlaun eru veitt höfundum fræðibóka og munu vera þau hæstu í peningum talið sem veitt eru íslenskum höfundum hérlendis. Friðbjörg Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri Hagþenkis, kemur í þáttinn. Guðmundur J. Guðmundsson sagnfræðingur segir okkur frá Idu Pfeiffer, en það var ótrauð ferðakona sem kom hingað1845, skrifaði bók sem Guðmundur hefur þýtt - Idu leist mátulega vel á þjóðina sem byggði landið og varð ekki vinsæl. Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum fjöllum við um hinn undarlega rithöfund og bóhem Jóhannes Birkland, höfund Harmsögu ævi minnar. Gagnrýnendur þáttarins spjalla um Stóra bróður eftir Skúla Sigurðsson, Urðarhvarf eftir Hildi Knútsdóttur og Snuð eftir Brynjólf Þorsteinsson.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

8. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,