Kvöldfréttir útvarps

Kókaínsmygl, hvalveiðar og spænsk innflytjendastefna

Níu eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild smygli á 106 kílóum af kókaíni í skipi sem kom frá Brasilíu. Aldrei hefur svo mikið kókaín fundist í einni sendingu hér á landi.

Þrjátíu og ein mínúta leið frá fyrsta skoti þar til langreyður drapst í leiðangri Hvals 8. Matvælastofnun rannsakar málið.

Milljón manns hafa sótt um dvalarleyfi á Spáni í sérstakri aðgerð stjórnvalda fyrir óskráða innflytjendur. Umsóknarfrestur rennur út í dag.

Neyðarlínunni hafa aðeins borist fimm sjálfvirk neyðarsímtöl frá ökutækjum í júní, samanborið við 175 í maí. Slökkt var endanlega á tvö G og þrjú G farsímakerfum landsins 1. júní.

Hættulegar aðstæður eru við Fosslaug og Reykjafoss í Skagafirði. Landeigandi segir óljóst hver beri ábyrgð ef slys verða og telur sig tilneyddan loka fyrir aðgang.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,