Kvöldfréttir útvarps

Dómur í plastbarkamáli, vítaverð afglöp lögreglu, meirihlutamyndanir og ferðahelgin framundan

Tómas Guðbjartsson skurðlæknir gerðist uppvís stórfelldu gáleysi í aðgerð á manni sem undirgekkst plastbarkaígræðslu í Svíþjóð árið 2011 mati Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann er sagður hafa sett akademískan frama yfir velferð sjúklingsins.

Lögmaður manns sem brenndist illa eftir afskipti lögreglu í vikunni segir lögregluna hafa látið vitni eyða myndbandsupptöku af atvikinu í algjörri lögleysu.

Málefnasamningar nýrra meirihluta voru kynntir í Reykjanesbæ og á Akureyri í dag. Viðræðum sjálfstæðismanna og framsóknar var slitið í Hafnarfirði fyrr í dag og í Reykjavík hugsa sjálfstæðismenn málið.

Og hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, stendur fyrir dyrum.

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt

21. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,