Dómur í plastbarkamáli, vítaverð afglöp lögreglu, meirihlutamyndanir og ferðahelgin framundan
Tómas Guðbjartsson skurðlæknir gerðist uppvís að stórfelldu gáleysi í aðgerð á manni sem undirgekkst plastbarkaígræðslu í Svíþjóð árið 2011 að mati Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann er sagður hafa sett akademískan frama yfir velferð sjúklingsins.
Lögmaður manns sem brenndist illa eftir afskipti lögreglu í vikunni segir lögregluna hafa látið vitni eyða myndbandsupptöku af atvikinu í algjörri lögleysu.
Málefnasamningar nýrra meirihluta voru kynntir í Reykjanesbæ og á Akureyri í dag. Viðræðum sjálfstæðismanna og framsóknar var slitið í Hafnarfirði fyrr í dag og í Reykjavík hugsa sjálfstæðismenn málið.
Og hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, stendur fyrir dyrum.