Fífldjarfir ferðamenn virtu viðvaranir að vettugi, dómur Mannréttindadómstóls Evrópu féll geng íslenska ríkinu
Fjöldi fólks virti lokunarhlið og rauð viðvörunarljós í Reynisfjöru að vettugi í dag þrátt fyrir varasamar aðstæður. Sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi segir erfitt að horfa á fólk fara sér að voða en það ráði sinni för.
Stjórnvöld þurfa að taka dóm Mannréttindadómstóls Evrópu til gaumgæfinnar skoðunar og meta hvernig megi gera betur, segir lögmaður. Dómurinn sagði ríkið hafa brotið gegn konu við rannsókn á ofbeldismálum gegn henni.
Byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Akureyri, sem stefnt hefur verið að síðan 2019, hefur verið frestað um minnst fimm ár.
Frakklandsforseti sendi í dag forsætisráðherra Ísraels erindi og vísaði áhyggjum hans um vaxandi gyðingaandúð í Frakklandi á bug. Hann sagði að ekki mætti nota gyðingaandúð sem grýlu.
Aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu svokallaða hélt áfram í dag.